Makaferð á Höfn

Á meðan á þingi stendur er boðið upp á ferð fyrir maka og aðra þá sem ekki taka þátt í störfum þingsins. Lagt verður af stað frá íþróttahúsinu á Höfn klukkan 12:30. Mikilvægt að klæða sig eftir veðri.

Frá Höfn verður keyrt í gegnum Nesin inn að Hoffellsjökli. Þar verður boðið upp á smá hressingu fyrir þá sem vilja. Næst liggur leiðin í Hoffell, nánar tiltekið í gestastofuna. Þar tekur Þrúðmar Þrúðmarsson á móti hópnum en hann er uppalinn á jörðinni og þekkir svæðið manna best. Hann mun segja aðeins frá lífinu í nábýli við jökulinn og tilurð gestastofunnar.

Frá Hoffelli liggur leiðin vestur á bóginn, yfir gömlu „hossubrúnna“ og áfram í gegnum Mýrarnar. Næsta stopp er í Flatey en þar er að finna eitt stærsta kúabú landsins. Þar mun bústjóri Birgir Freyr Ragnarsson taka á móti hópnum, segja aðeins frá kúabúinu og við fáum að skoða fjósið. Frá Flatey verður keyrt eftir nýja veginum til Hafnar og endað á Heppunni. Þar er nýbúið að opna jöklasýningu (Glaciers of Höfn) með sýndarveruleika og þeir sem vilja geta keypt sér aðgang að þeirri sýningu. Aðgangur á sýninguna kostar 2990 krónur. Þeir sem vilja ekki fara á sýninguna geta sest niður á veitingahúsinu og fengið sér smá hressingu.

Lengd á ferð: 3 ½ – 4 tímar.

Nauðsynlegt er að panta í makaferðina því það er takmörkun á sætafjölda. Það hægt að senda póst thing@kiwanis.is Einnig er hægt að kaupa miða í íþróttahúsinu.

Umsjón með makaferð hefur Hjördís Skírnisdóttir innfædd Nesja kona og mun hún jafnframt segja frá ýmsu tengdu svæðinu.

Verð í makaferð er 5000 krónur á mann. Léttar veitingar eru innifaldar

Facebook
Email

Fréttabréf

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu nýjustu fréttir sendar í tölvupósti.
HornafordurVetur