Drög að dagskrá: (endanleg dagskrá kemur í þingblaði)
Föstudagur 9. September :
09.00 – 16.00 Afhending þinggagna og sala miða á lokahóf
09.00 – 10.00 Umdæmisstjórnarfundur
10.00 – 12.00 Fræðsla forseta
12.00 – 13.00 Matathlé
13.00 – 14.00 Aðalfundur Tryggingasjóðs
14.00 – 16.00 Mál-og vinnustofur
20.30 – 21.00 Þingsetning í Selfosskirkju
21.00 – 23.00 Opið hús / móttaka á Hótel Selfoss
Laugardagur 10. September.:
08.30 – 15.00 Afhending þinggagna og sala miða á lokahóf
09.00 – 11.00 Þingfundi fram haldið á Hótel Selfossi
Skýrslur umdæmisstjórnar og nefnda
og umræður um þær.
Reikningar 2021-2022
Fjárhagsáætlun 2022-2023
Kjör skoðunnarmanna reikninga
Lagabreytingar og ályktanir
Samantekt fra föstudeginum
12.00 – 13.00 Matarhlé
13.00 – 16.00 Þingfundi framhaldið.
Aðalfundur Styrktarsjóðs
Ávörp erlendra gesta
K-dagsnefnd
Stefnumótunarnefnd
Afhending viðurkenninga
Staðfesting á kjöri umdæmisstjóra 2022-2023
Kynning og kjör á kjörumdæmisstjóra 2022-2023
Kynning og kjör á framboði/um á verðandi kjörumdæmisstjóra 2022-2023
Staðfesting stjórnar 2022-2023
Kynning á umdæmisþingi 2023
Okkar 50 Umdæmisþing var slegið af vegn Covid 19, og einungis var haldinn rafrænn kjörfundur á Bíldshöfða 12 þann 19 september 2020
49. Umdæmisþingið verður haldið í Hafnarfirði daganna 20. og 21. september 2019.
Þingið verður haldið á Ásvöllum og þar fer fram allt sem tengist þinginu, og sjálft þingið. Þingsetning verður
í Ástjarnarkirkju og móttaka á eftir á Ásvöllum þá verður einnig galaballið haldið þar á laugardagskvöldinu.
Ásvellir eru í göngufæri við kirkjuna og hótel Velli og tekur aðeins örfáar mínútur að ganga milli staða.
Búið er að taka frá 21 herbergi á Hótel Völlum og er þegar búið að bóka í 9 herbergi og 9 herbergi eru á bið
til viðbótar, á Hótel Norðurey sem fleiri þekkja sem Hótel Hafnarfjörður er búið að taka frá 18 herbergi.
Ef fólk hefur áhuga núna að bóka sér herbergi verður það að fara í gegnum nefndina þar sem ekki er enn búið
að ákveða hvernig verður staðið að bókunni hjá hótelunum. En það kemur fljótlega eftir áramótin.
Búið er að hanna fyrstu drög að nafnspjöldum en við erum sammála um að hanna þau sjálf og plasta og spara kostnað.
Tillögur eru komnar að veislustjóra og hljómsveit og eru þær viðræður að fara í gang. Einn þingnefndarmaður
hefur tekið að sér að tala við bæjarstjóra Hafnarfjarðar vegna þingsetningar á föstudeginum.
Þingnefnd skipa
Þyrí Marta Baldursdóttir formaður
Vilborg Andrésdóttir Sólborg
Árni Sigurðsson Hraunborg
Haraldur Jónsson Hraunborg
Guðjón Gunnarsson Eldborg
og Gunnar Rafn Einarsson Eldborg
Dagskrá 49. umdæmisþings
haldið í Hafnarfirði, 20. – 21. september 2019
Föstudagur 20. september
08:45 - 09:30 Umdæmisstjórnarfundur Ásvöllum
09:00 - 16:00 Afhending þinggagna og sala miða á lokahóf Ásvöllum
10:00 - 12:00 Fræðsla: Jafningjastjórnum
Umsjón: Eyþór Eðvarðsson frá Þekkingarmiðlun
12:00 - 13:00 Matur
13:15 - 15:15 Málstofa: Vandamál Kiwanis, hvað getum við gert betur.
Umsjón Eyþór Eðvarðsson frá Þekkingarmiðlun
14:15 - 15:30 Aðalfundur Tryggingarsjóðs Kiwanis Ásvöllum
15:30 – 16:00 Málstofa: Sam og Terry Sekhon verða með erindi um fjölgun félaga.
15:30 - 17:00 Kennsla á gagnagrunn KI og Office 365
Þátttakendur hafi með sér tölvu.
20:30 - 21:00 Þingsetning Ásvallakirkju
21:00 - 23:00 Opið hús á Ásvöllum
Laugardagur 21. september
08:30 - 15:00 Afhending þinggagna og sala miða á lokahóf og í makaferð
09:00 Þingfundi framhaldið á Ásvöllum
11:00 Hlé á þingfundi
12:00 – 13:00 Hádegishlé – matur.
13:00 – 16:00 Þingfundi framhaldið
16:00 Þingfundi frestað
18:00 - 19:00 Umdæmisstjórnarskipti Ásvöllum
19:00 - 01:00 Lokahóf, þingslit og dansleikur Ásvöllum
Okkar 48 Umdæmisþing hefur verið valinn staður í Mosfellsbæ og mun fara fram dagana 21 til 22 september. Þingnefnd hefur hafið störf undir sjórn Sigurðar Skarphéðinssonar. Fræðsla Embættismanna mun fara fram í Hlégarði þann 21 september, en þinghald mun fara fram í Hégarði ásamt Galaballi þar sem gengið hefur verið frá því að hljómsveitin Blek og Byttur munu leika fyrir dansi. Setning þingsins mun síðan fara fram í Lágafellskirkju.
Föstudagur 21. september
08:45 – 09:30 Umdæmisstjórnarfundur í Kiwanishúsinu Mosfellsbæ
09:00 – 16:00 Afhending þinggagna og sala miða á lokahóf Hlégarði
09:30 – 11:30 Fræðsla ritara í aðalsal Hlégarði
10:00 – 11:30 Fræðsla forseta í Kiwanishúsinu Mosfellsbæ
10:00 – 11:30 Fræðsla féhirða í sal B í Hlégarði
11:30 – 12:30 Hádegishlé
12:30 – 14:00 Kynning og kennsla á Office 365 í aðalsal Hlégarði
14:15 – 15:30 Aðalfundur Tryggingarsjóðs Kiwanis í Kiwanishúsinu Mosfellsbæ
14:15 – 15:30 Málstofa – Stefnumótun umdæmisins og Formúlan í aðalsal Hlégarði
14.15 – 15.30 Málstofa – Ný persónuverndarlög í sal B Hlégarði
14:15 – 15:30 Málstofa – K-dagur 2019 í setustofu Hlégarði
20:30 – 21:00 Þingsetning í Lágafellskirkju
21:00 – 23:00 Opið hús í húsnæði björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ
Laugardagur 22. september
08:30 – 15:00 Afhending þinggagna og sala miða á lokahóf og í makaferð
09:00 Þingfundur í Hlégarði
11:30 Hlé á þingfundi
Aðalfundur Styrktarsjóðs
12:00 – 13:00 Hádegishlé.
13:00 Þingfundi framhaldið
16:00 Þingfundi frestað
18:00 - 19:00 Umdæmisstjórnarskipti í Kiwanishúsinu í Mosfellsbæ
19:00 - 02:00 Lokahóf, þingslit og dansleikur í Hlégarði.
Gagnlegar upplýsingar
Gisting:
Hótel Laxnes Mosfellsbæ sem er í göngufæri við Hlégarð býður 26 tveggja manna herbergi fyrir kr. 25.000 nóttina með morgunmat. Teknar hafa verið frá aðfararnætur 21. – 23. september. Panta þarf fyrir 15. júní til að njóta þessa verðs og tryggja sér herbergi.
Hótel Smári Hlíðarsmára 13, Kópavogi býður eins manns herbergi á kr. 16.900 en tveggja manna herbergi fyrir kr. 19.900. Panta þarf fyrir 15. maí til að njóta þessa verðs og tryggja sér herbergi.
Reykjadalur í Mosfellsdal. Um er að ræða svefnpokapláss í sumarbúðum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, samtals 13 herbergi með frá einu rúmi upp í sex rúm í herbergi, þar af 3 með kojum. Sameiginlegt baðherbergi. Þeim sem þar gista býðst afnot af eldhúsi, borðstofu, heitum potti og sundlaug. Verðið er mjög hóflegt kr. 4.500 nóttin fyrir rúmið miðað við tvo í herbergi. Styrktarfélagið lítur á svo á að greiðsla fyrir herbergin sé styrkur til Reykjadals. Geta því klúbbar greitt leiguna úr styrktarsjóði, ef þeim sýnist svo. Gistingu í Reykjadal þarf að panta hjá Sigurði formanni þingnefndar á netföng: thingnefnd@kiwanis.is eða traktor@simnet.is fyrir 1. september.
Þingsetning.
Þingsetning verður í Lágafellskirkju með hefðbundnu sniði föstudagskvöldið 21. september.
Vinakvöld.
Vinakvöld að lokinni þingsetningu verður í húsakynnum Björgunarsveitarinnar Kyndils að Völuteig 23, Mosfellsbæ. Í boði verða léttar veitingar.
Lokahóf – Galaball.
Lokahófið verður í Hlégarði á laugardagskvöldinu. Miðaverðið er 9.500 krónur. Veislustjóri verður Guðni Ágústsson fv. ráðherra.
Þetta er árshátíð okkar Kiwanisfélaga og því opið öllum Kiwanisfélögum, ekki bara þingfulltrúum. Hvetjum við því sem flesta Kiwanisfélaga að mæta á góða skemmtun og njóta góðs matar og veitinga. Þar sem aðeins eru í boði 150 miðar er vissara að panta miða tímanlega eða í síðasta lagi 20. september. Miðana má panta hjá Sigurði formanni þingnefndar á netfangið thingnefnd@kiwanis.is eða traktor@simnet.is
Snyrtilegur klæðnaðu á Galaballi.
Ákveðið er að 47. Umdæmisþing Íslenska og Færeyska Kiwanisumdæmisins verði haldið á Akureyri 22.-23. september 2017. Búið er að skipa undirbúningsnefnd og í henni eru, Kristinn Örn Jónsson, Helgi Pálsson og Stefán Jónsson allir félagar í Kaldbaki á Akureyri. Við teljum gott að vera 3 í nefndinni til að byrja með en e.t.v. verður fjölgað þegar nær dregur og Kiwanisfélagar í okkar klúbbi og nágranna klúbbum virkjaðir. Nefndin hefur fundað nokkrum sinnum og unnið ýmsa frum undirbúningsvinnu svo sem að panta þingstað, gistingu og leggja drög að veitingum.
Þingstaður: Við höfum valið Íþróttahöllina á Akureyri sem þingstað. Höllin hentar vel í svona verkefni og er vinsæl af félagasamtökum og fyrirtækum fyrir árhátíðir og ráðstefnur. Hún hefur margar vistarverur uppá að bjóða, bæði litlar og stórar. Aðalsalinn getum við haft af þeirri stærð sem okkur hentar bæði fyrir þingið sjálft og lokahófið. Margir minni salir eru til notkunar á fræðslu og málstofum ýmiskonar. Við reiknum með að geta haft allt þingjaldið á þessum eina stað.
Gisting. Á Icelander Hótel (akureyri@icehotels.is) hafa verið tekin frá 40 herbergi. Verð fyrir 2.gja manna er kr. 29.900 og einsmanns 27.900 með morunverði. Hótelið er glæsilegt í alla staði með góðum veitingastöðum sem eru rómaðir af íbúum og gestum bæjarins. Það er mjög vel staðsett í hjarta bæjarins, að minnstakosti finnst okkur Brekkubúum það því þetta er eina hótelið á okkar svæði. Þingstaðurinn okkar er hinu megin við götuna þannig að það hentar mjög vel fyrir þá sem lítið vilja nota bíl. Ekki skemmir að ,,happyhour” er alltaf á föstudögum milli 17 og 19. Bóka þarf fyrir 1. maí 2017
Hótel Kjarnalundur: (info@kjarnalundur.is) Það er staðsett í jaðri Kjarnaskógar 4,9 kílometra frá þingstað sem tekur 6 mínútut að aka. Það skal tekið fram að þessi tímamæling var tekin af ökukennara og því alltaf ekið á löglegum hraða. Þetta er nýstandsett Hótel með 59 vel búnum og huggulegum herbergjum. Við pöntuðum allt hótelið 59 herbergi og fengum þau á frábæru verði kr. 11.500 pr. nótt með morgunverði. Þetta verð miðast við að við fyllum hótelið og tökum 3 nætur, aðfararnótt föstud.-laugard. og sunnudags. Ef við
fyllum ekki staðinn þessar 3 nætur hækkar gjaldið um 20-25%. Bóka þarf fyrir 1. maí 2017. Reiknað er með rútuferðum milli þessa hótels og þingstaðar. Eins og fyrr segir er hótelið staðsett í Kjarnaskógi með fallegu útsýni yfir Eyjafjörðinn og flugvallarsvæðið. Skógurinn skartar væntanlega sínum fegurstu haustlitum á þessum tíma í margrómaðri haustkyrrðinni á Akureyri.
Gistiheimili: þá er í boði gisting hjá Sæluhúsum sem eru með íbúðir með og án potts. Þarna getur verið um 7 hús, 14 studioíbúðir með potti og 18 án potts. Þar er verðið svolítið rokkandi eftir hvernig gistingu hver velur. (info@saeluhus.is) Þessi hús eru nýleg og mjög vel staðsett fyrir þinggesti í þægilegu göngufæri við þingstaðinn. Þarna er um að ræða góða gistiaðstöðu, vel búið og á mjög góðu verði. Eins og á hinum gististöðunum þarf að ganga frá bókun fyrir 1.maí. Haft verður samband við einhver fleiri gistiheimili sem hægt er að vísa á ef einhverjir vilja nota slíka gistingu. Einnig er ógrynni af orlofsíbúðum í bænum og margir notfæra sé þær ábyggilega. Við munum fylgjast með og bæta við gistiaðstöðu ef þurfa þykir. (Sem vonandi verður)
Við könnuðum stöðuna með gistinguna nú fyrir skömmu og kom í ljós að Hótel Kjarnalundur er að verða full bókað, 5-7 herbergi laus en lítið sem ekkert bókað hjá Icelander Hótel. Sæluhúsin eru nýlega komin inn þannig að ekki er byrjað að bóka þar en töluvert spurst fyrir um gistingu og hér eftir er allt opið með bókanir. Við erum þarna með samtals í boði gistingu sem samsvarar milli 140 og 150 tveggjamannaherbergjum. Það er okkur mikil hvatning til góðara verka að svo margir eru búnir að bóka sig í gistingu með svo löngum fyrirvara.
Veitingar: Frumkönnun hefur farið fram og komnar hugmyndir varðandi verð og matseðla fyrir þingið.
Við í nefndinni höfum fengið spurningar um hvort það þurfi virkilega heila íþróttahöll til að halda þingið okkar. Svar okkar er að við erum ekki með alla Höllina en þó stóran hluta hennar. Eins og áður segir eru þar nægar vistarverur til að funda, hvort sem um fjölmenna eða fámenna fundi er að ræða. Þar er einnig kaffitería sem menn geta sest niður og slappað af frá þingstörfum ef svo vill verkast. Góð aðstaða er þarna fyrir allt sem viðkemur þinghaldinu og hægt að hafa allt á sama staðnum. Einn galli er þó á þessu og hann er sá að þetta kostar peninga, nokkuð mikla peninga. Ég sem hér stend er ekki talsmaður þess að eyða peningum í óþarfa. En ég tel að sá mikli sparnaður og sparnaðarumræða undanfarin mörg ár hafi skaðað hreyfinguna okkar. Við eigum að bera höfuðið hátt og reka okkar félagsskap af reisn. Þess vegna viljum við í Þingnefndinni leggja okkar lóð á vogarskálar og gera Umdæmisþingið að veglegri hátíð sem
menn sækjast eftir að koma á og njóta. En allt kostar þetta peninga. Umdæmisþingin undanfarin ár hafa litast töluvert af þessari sparsemi og goldið fyrir það. Ég held að flestir sjái að það þurfi að lyfta þessu á aðeins hærra plan, bæði hvað aðstöðu varðar og alla umgjörð, einnig er sorglegt að sjá hvernig klæðaburður sumra sem sækja lokahófið er. Það er ekki boðlegt að menn mæti þar í gallabuxum, íþróttaskóm og bol eins og dæmi er um. Ég er þess fullviss að ekki eru allir sammála mér í þessum efnum sem ég hef minnst á hér að ofan og er öll umræða af hinu góða. Gott væri ef þið sem hér eruð kynntu þetta í ykkar klúbbum og við í þingnefndinni sendum svo upplýsingar í alla klúbba eftir áramót. Væntanlega koma upplýsingar frá Þingnefndinni á heimasíðu Kiwanis fljótlega.
Umdæmisþing sem haldin hafa verið á Akureyri í gegnum tíðina hafa heppnast vel og verið góð mæting Kiwanisfélaga. Síðast þegar þing var haldið fyrir norðan voru um 400 manns á lokahófinu. Við Kiwanisfélagar hér fyrir norðan göngum glaðir og fullir eldmóðs til verka við undirbúninginn og vonum að fjölmennt verði hjá okkur og allir sem sækja þingið eigi góða og notarlega dvöl á Akureyri í september 2017.
F.h. Umdæmisþingnefndar Kristinn Örn Jónsson, formaður
Makaferð
Í tengslum við Umdæmisþingið á Akureyri verður ferð fyrir maka Kiwanisfélaga laugardaginn 23.09. Farið verður í rútu frá Íþróttahöllinni kl. 13.00 og Hótel Kjarnalundi kl. 13.15. Ekið verður um innanverðan Eyjafjörð með viðkomu í Smámunasafninu sem er einstakt í sinni röð, Jólagarðinum og fleiri áhugaverðum stöðum. Veitingar verða á áningastöðum og kostar ferðin aðeins kr. 2.000. Við hvetjum fólk til að nota sér þessa einstöku ferð og skoða Eyjafjörðinn í allri sinni dýrð. Áætlað er að ferðin taki 2 – 2 1/2 klukkutíma.
Þingnefndin
46 Umdæmisþing Kiwanis föstudag 13 maí kl. 9.00 opið hús Ferðafélagsalnum Mörkinn 6 tekið á móti klúbbfánum og byrjað að afhenda fulltrúum gögnin sín.
Fræðsla byrjar kl.10.00 matarhlé kl.12.00 fræðslu lok kl.14.00 Málstofa kl.14.10 til kl. 16.30.
Þingsetning verður í Grafavogskirkju kl. 20:30 föstudagskvöldið 13. maí, dagskrá verður hefðbundin.
Að setningu lokinni verður opið hús í sal Ferðafélagsins Mörkinni 6, þar sem Kiwanisfélagar og gestir geta fengið sér hressingu undir ljúfum tónum frá harmonikku spilaranum Gunnari Kvaran fyrrum Kiwanisfélaga.
Þeir Kiwanisfélagar og gestir sem gista á Hótel Smára er boðin rútuferð frá Hótel Smára að Grafarvogskirkju og síðan að Mörkinni 6 eftir þingsetningu og heim aftur á Hótel.
Boðið verður upp á makaferð laugardaginn 14. maí kl. 13.00. Lagt verður af stað frá Ferðafélags salnum Mörkinni 6, farið verður á Þjóðminjasafnið. Þar eru eftirfarandi sýningar; ”Vinnandi folk - ASÍ í 100 ár”, ”Hvað er svona merkilegt við það? - Störf kvenna í 100 ár”, ” Bláklædda konan
Lokahóf verður haldið laugardagskvöldið 14. maí í sal Ferðafégsins Mörkinni kl.19.00. Miðar á Lokahófið verða seldir í afgreiðslunni á Þinginu. Rúta sækir gesti á Hótel Smára á lokahófið. Innifalið í aðgöngumiða er happdrættismiði og í vinning verða nokkrar léttvínsflöskur. Boðið verður upp á forréttarsprengju, hlaðborð með lambi og kalkún og að lokum kaffi með afmælistertu í tilefni 40 ára Kiwanisklúbbsins Bása Ísafirði og 50 ára Kiwanisklúbbsins Kötlu í Reykjavík.
Boðið verður upp á skemmtiefni Bjarni Ara og dans í lokin og mun hljómsveitin Upplyfting sjá um að leika fyrir dansi.
Hótel Smári er með sér tilboð á gistingu 12. 13. .14.maí 2016 bóka þarf fyrr en 15 janúar 2016 fyrir Kiwanisfélaga sími 5881900. Einsmanns herbergi kr. 12.900 per dag. Tveggja manna kr. 15.900 per dag og þriggja manna herbergi kr. 19.700 per dag verð með morgunverði. Endilega að panta sem
fyrst.Hótel Laxnes lofaði að veita afslátt á gistingu.
Dagskrá 46. umdæmisþings
haldið í Reykjavík, 13. – 14. Maí 2016
Föstudagur 13. Maí:
09:00 – 11:00 Umdæmisstjórnarfundur Bíldshöfða
10:00 – 16:00 Afhending þinggagna og sala miða á lokahóf
10:00 – 14:00 Fræðsla sal Ferðafélags Íslands Mörkinni 6
10:00 – 11:00 Fræðsla (forseta – ritarar – féhirðar saman)
11:00 - 12:00 Fræðsla forseta (fyrri hluti)
„ ritara (fyrri hluti)
„ féhirða
12:00 – 12:30 Matur
12:30 - 14:00 Fræðsla forseta frh.
12:30 - 13:30 Fræðsla ritara frh.
14:10 - 16:30 Málstofa Kynningar og Markaðsmál
20:30 – 21:00 Þingsetning í Grafarvogskirkju
21:00 – 23:00 Opið hús
Laugardagur 14. Maí :
08:45 – 15:00 Afhending þinggagna og sala miða á lokahóf
09:00 – 12:00 Þingfundi framhaldið Salur FI Mörkinni 6
Aðalfundur Styrktarsjóðs umdæmisins
12:00 – 13:00 Hádegishlé – matur
13:00 – 16:00 Þingfundi framhaldið
16:00 Þingfundi frestað
19:00 – 02:00 Lokahóf.
Hátíðarkvöldverður, ávörp , skemmtiatriði,
þingslit, dansleikur.
PRENTVÆN ÚTGÁFA
Búið er að senda fundarboð og kjörbréf til allra klúbba með tölvupósti fyrir umdæmisþing 13 til 14 maí 2016.
Eindagi að skila kjörbréfi og greiðslu þinggjalda er 1 mars 2016
Endilega að láta vita ef gögnin hafa ekki borist til ykkar forsetar !
46 Umdæmisþingnefnd
Jóhannes formaður síma 6944772 netfang jkg48@simnet.is
ÞINGBLAÐ KIWANISFRÉTTA
Eins og ykkur ætti að vera kunnugt hef ég tekið að mér að sjá um þingblaðið þetta árið. Ég er búin að taka tilboði frá Stapaprent í Keflavík sem er mjög hagstætt.
Prentsmiðjan þarf að fá allt efni í síðasta lagi 15 apríl svo hægt verði að koma blaðinu í póst frá okkur 9.maí svo það berist Kiwanisfélögum fyrir þing
Bið ykkur vinsamlegast um að virða þessi tímamörk og senda allt á netfangið mitt eigi síðar en 13. apríl þar sem ég þarf að fara yfir allt og koma í prentsmiðjuna í tæka tíð.
Bestu kveðjur og ósk um gott samstarf
Þyrí