Ævar bangsi.

Ævar bangsi.


Það er hefð fyrir því að Kiwanisklúbburinn Keilir gefi bangsa til Brunavarna Suðurnesja en bangsarnir eru ætlaðir til huggunar fyrir þau börn sem þurfa á sjúkraflutningum að halda.

Bangsinn hefur fengið nafnið Ævar og er hann til minningar um Ævar Guðmundsson fyrrverandi Keilismanns sem lést árið 2008.  Fjölskylda Ævars styrkti verkefnið Kiwanisklukkan og hefur verið afhentur styrkur í nafni Ævars síðan þá.

Það var Ingólfur Ingibergsson forseti Keilis ásamt Guðrúnu Eyjólfsdóttur ekkju Ævars heitins sem afhentu bangsana í þetta skiptið og það var Ármann Árnason varðstjóri sem tók við gjöfinni.