Askja gefur stórann styrk til kaupa á Björgunarskipi !

Á Páskabingóinu afhentum við í Kiwanisklúbbnum Öskju, Björgunarbátasjóði Vopnafjarðar formlega styrk upp á 3.000.000 kr vegna kaupa á nýju björgunarskipi. Það voru þeir Hreiðar, forseti, og Ingólfur, formaður styrktarnefndar, sem afhentu Magna Hjálmarssyni skjal því til staðfestingar. Að því loknu sagði Magni gestum frá björgunarskipinu sem væntanlegt er og þökkum við honum kærlega fyrir það.

Facebook
Email

Fréttabréf

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu nýjustu fréttir sendar í tölvupósti.