Pungagleði hjá Sólborgu !

Pungagleði hjá Sólborgu !


Sólborg tók forskot á Þorra í gær og var með Pungagleði á fundi í gær

Á þessum fundi eru makar boðnir með og allt í allt voru 38 á fundinum

19 félagar og 19 gestir þar af voru tvær konur sem hafa áhuga á að ganga til liðs við klúbbinn.

Hafði skemmtinefndin skreytt salinn og fengið Árna Jonsen til að koma  og skemmta okkur.

Árni sagði sögur frá Eyjum og alþingi og að sjálfsögðu var mikið sungið.

Þá var skemmtinefndin með uppboð og voru það sokkar sem boðið  var í og reyndist margt skemmtilegt vera í sokkunum.

Þetta var hinn skemmtilegasti fundur.

 

Kveðja

Hildisif Björgvinsdóttir 

Forseti Sólborgar