Ragnar Örn Pétursson látinn

Ragnar Örn Pétursson látinn


Á föstudaginn síðast liðinn barst sú sorgarfregn að Ragnar örn Pétursson  væri látinn. Ragnar Örn hefur verið félagi í Kiwanisklúbbnum  Keili á þriðja áratug og jafnframt  unnið mikið að Kiwanis málefnum  á sviði Kiwanisumdæmissins  Ísland Færeyjar var umdæmisstjóri  starfsárið 2011-2012 og núverandi formaður Kynningar og Markaðsnefndar umdæmissins. Ég vil fyrir hönd umdæmissins Ísland Færeyjar þakka Ragnari Erni allt hans starf mikla í þágu Kiwanis hreyfingarinnar,  sjálfur vil ég þakka honum sérstaklega fyrir að vera mér til ráðgjafar og stuðnings

í starfi mínu sem umdæmisstjóri.  Fyrir hönd Kiwanisumdæmissins sendi ég Siggu og fjölskyldunni okkar dýpstu samúðarkveðjur. 

Ragnar Örn Pétursson verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju  miðvikurdaginn 4 maí kl 13

 

Gunnsteinn Björnsson 

Umdæmisstjóri